Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar, hefur skipað Skarphéðin Berg Steinarsson í embætti ferðamálastjóra til fimm ára frá 1. janúar 2018.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Skarphéðinn Berg útskrifaðist með cand. oecon.-próf í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1987 og lauk MBA-námi frá University of Minnesota árið 1990.
Hann hefur víðtæka stjórnunar- og rekstrarreynslu bæði úr atvinnulífinu og úr stjórnsýslunni, m.a. sem skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu. Í fyrri störfum sínum hefur hann m.a. komið að fjármálastjórnun, áætlanagerð og fjárlagagerð ásamt því að hafa góða reynslu af stjórnun breytinga.
Skarphéðinn hefur jafnframt góða þekkingu á ferðaþjónustu, meðal annars í gegnum störf sín sem forstjóri Iceland Express, forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands og framkvæmdastjóri Íshesta, að því er segir í tilkynningunni.