Verðbólga síðustu missera hefur verið drifin af örfáum þáttum eins og húsnæði og opinberri þjónustu. Verð á helstu neysluvörum, eins og húsgögnum, hefur hins vegar lækkað síðustu 12 mánuði.
Þetta kemur fram í samantekt Samtaka verslunar og þjónustu. Þar segir að verð á húsgögnum og heimilisbúnaði hafi lækkað um 12,5% síðustu 12 mánuði. Lítil heimilistæki hafa lækkað um 8,4%, stór heimilistæki um 7,5%, raftæki um 7,1% og sjónvörp, myndbönd, tölvur o.fl. um 8,2%.
Enn fremur hafi verð á matvörum lækkað um 1,1% og verð á drykkjavörum lækkað um 4,1% á sama tímabili.
Þá segir að þegar nánar sé skoðað hvað hafi valdið verðbólgunni að undanförnu megi ljóst vera að þar muni um þætti eins og húsnæði og opinbera þjónustu. Ríkið og sveitarfélögin hafi aukið álögur á heimilin, t.a.m. hafi sorphreinsun hækkað um 15,9%, holræsisgjöld um 1,9% og rafmagn og hiti um 1,5% síðustu 12 mánuði.
„Erfitt er að festa hendi á nákvæmlega hvað veldur slíkum hækkunum en það mætti m.a. nefna að hagsmunir ríkisfyrirtækja eru dreifðir, þ.a. hver og einn eigandi hefur mjög takmarkaðan hag af því að veita fyrirtækinu aðhald. Þá hafa laun hjá opinberum starfsmönnun hækkað meira en á almenna vinnumarkaðnum,“ er skrifað í frétt á vef SVÞ.