Tjónum fjölgar í takt við uppsveifluna

Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá mbl.is/Kristinn Magnússon

Það eru margvíslegar áskoranir sem tryggingafélög standa frammi fyrir, bæði í tengslum við framkvæmdir og breytta umferðarmenningu, segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár sem er á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki. Tækifærin eru þó ekki síðri og styrkurinn felst í frábæru starfsfólki, en hjá Sjóvá starfar hópur á breiðu aldursbili, með mikla reynslu og góða kynjaskiptingu.

„Góðan árangur þökkum við fyrst og fremst frábæru starfsfólki. Hjá Sjóvá starfar góður hópur fólks, kynjaskipting er jöfn, aldursdreifing góð og þekking og reynsla afar fjölbreytt,“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár. „Við státum af afburða starfsanda og fyrirtækjamenningu sem við erum stolt af, enda felast í því mikil verðmæti. Að undanförnu höfum við lagt mikla áherslu á frumkvæði í samskiptum við viðskiptavini okkar, að fara yfir tryggingavernd þeirra og benda á það sem betur má fara. Við finnum vel að viðskiptavinir okkar kunna að meta þetta.“

Með á nótunum í deiglunni

Hermann bætir því við að starfsfólk Sjóvár leggi sig líka fram um að vera vel með á nótunum í því sem er að gerast í samfélagsumræðunni hverju sinni.

„Þannig fórum við t.d. vandlega yfir alla okkar ferla og vinnulag sem eru til staðar hjá okkur í kjölfar Metoo-umræðunnar í lok síðasta árs. Við höfðum reyndar fengið sjálfstæða ráðgjafa fyrir tveimur árum til að framkvæma viðamikla könnun á meðal starfsfólks á vellíðan, svokallað sálfélagslegt áhættumat, sem meðal annars tók út einelti og kynferðislega áreitni. Að mati þessara sérfræðinga var staða okkar í þessum málum með því betra sem þeir höfðu kynnst og er það þakkarvert. Það þýðir þó ekki að hægt sé að afgreiða mál sem þessi út af borðinu í eitt skipti fyrir öll. Það þarf stöðugt að halda umræðunni gangandi og gefa skýr skilaboð.“

Tökum breyttu umhverfi fagnandi

„Við viljum marka okkur sérstöðu með góðu þjónustustigi sem sniðið er að þörfum hvers og eins,“ útskýrir Hermann. „Þegar talað er um þarfir viðskiptavina er ljóst að þær eru að breytast hratt og við þurfum að fylgja þeim. Krafa um rafræn samskipti og viðskipti hefur vaxið umfram það sem við þó bjóðum upp á að svo stöddu,“ bætir hann við. „Við höfum tekið auknum kröfum og breyttu umhverfi fagnandi því ný hugsun viðskiptavina er ekkert annað en tækifæri fyrir okkur til að verða betra tryggingafélag. Þessu kalli erum við að svara og eru það meðal annars stóru verkefnin framundan.“

Forvarnir og ávinningur þeirra

Spurður um starfsumhverfi fyrirtækisins með tilliti til þróunar tjóna segir Hermann að Sjóvá fari ekki varhluta af því að það er uppsveifla í þjóðfélaginu.

„Við þekkjum það vel að þegar hraðinn í samfélaginu eykst og framkvæmdir eru á fullu fjölgar tjónum því miður. Tjónatíðni hefur aukist og það er mikilvægt að reyna sporna við þeirri þróun eins og hægt er. Þar koma forvarnir til sögunnar,“ bendir hann á. „Við finnum til dæmis vel fyrir því að þau fyrirtæki sem eru í viðskiptum við okkur og skuldbinda sig til forvarnasamstarfs hafa náð miklum árangri í fækkun tjóna. Sjóvá hefur mikið að bjóða á þessu sviði því við búum að áratuga reynslu af forvörnum og það er ávinningur að því að fækka tjónum og koma í veg fyrir óhöpp og slys. Starfsánægja eykst og traust til fyrirtækisins, auk þess sem færri slys og tjón hafa bein áhrif á kostnað.“

Það blasa við miklar áskoranir er varða öryggi í umferðinni og umferðamenningu, að mati Hermanns. Notkun snjalltækja undir stýri er því miður allt of mikil. „Taka verður á þessum vanda með öllum ráðum og eitt af því er að hækka sektir verulega,“ segir Hermann með áherslu.

„Að sama skapi verðum við að ná betur utan um viðhald og endurnýjanir á öllum helstu vegum landsins þar sem umferðarþungi hefur stóraukist ár frá ári. Sjálfum finnst mér sorglegt að okkur hafi ekki tekist að fá alla þá erlendu ferðamenn sem aka um vegi landsins til að greiða sinn hlut í notkun á vegakerfinu eins og algengt er í löndunum allt í kringum okkur.“

Framundan hjá Sjóvá

Á nýju ári mun Sjóvá svo halda áfram að gera vörur fyrirtækisins og þjónustu einfaldari og aðgengilegri, að því er Hermann segir.

„Við munum halda áfram að sýna frumkvæði í samskiptum við viðskiptavini ásamt því að bjóða lausnir sem koma til móts við sífellt breyttar þarfir, tækninýjungar og þjóðfélagsbreytingar. Svo má geta þess að Sjóvá rekur starfsemi sína allt aftur til ársins 1918 sem þýðir að félagið fagnar 100 ára afmæli á þessu ári. Þó að slík tímamót séu ánægjulegur áfangi er umhverfið að breytast hratt og þessi tímamót minna okkur á mikilvægi þess að vera vakandi og taka af skarið og gera þær breytingar sem viðskiptavinir og umhverfið kallar eftir.“

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK