Forsvarsmenn Kaupskila, sem eiga 57% hlut í Arion banka, reyna nú til þrautar að fá sem flesta lífeyrissjóði að eignarhaldi bankans í aðdraganda þess að hann verður skráður á markað.
Í því skyni hefur stjórn Arion banka lagt fram tillögu um 25 milljarða arðgreiðslu út úr bankanum sem renna mun í hlutfalli til nýrra eigenda hans, gangi kaup sjóðanna eftir.
Þrátt fyrir þetta hefur reynst minni áhugi meðal sjóðanna á aðkomu að bankanum en búist var við. Nokkrir af stærstu lífeyrissjóðum landsins hafa lítinn áhuga á að kaupa hlut í bankanum í aðdraganda skráningarinnar þótt þeir útiloki ekki kaup í honum af því tilefni, að því er fram kemur í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag.