Íslensku flugfélögin nú með 96 þotur

Icelandair Group verður með 50 flugvélar í rekstri í ár,
Icelandair Group verður með 50 flugvélar í rekstri í ár, mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Íslensk flugfélög verða með um 96 stórar flugvélar í rekstri í ár. Þar af eru 6 þeirra stórar farþegaþotur.

Icelandair Group er langstærsta flugfélagið en það verður með um 50 flugvélar í rekstri í ár.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir flotann hafa stækkað á síðustu árum.

„Í árslok 2017 samanstóð flugfloti Icelandair Group af alls 46 flugvélum. Þar af voru 37 í eigu félagsins og 9 á leigu,“ segir hann.

Samkvæmt ársskýrslu Icelandair Group fyrir 2017 eru 34 af þessum 37 vélum félagsins án veðbanda. Það þýðir að félagið á þær skuldlaust.

Icelandair Group er nú með sex Bombardier Q 200/400 vélar í rekstri á vegum Air Iceland Connect. Þær eru litlar skrúfuþotur.

Gera ráð fyrir frekari fjölgun

Björgólfur segir að miðað við núverandi áætlanir muni félagið taka 16 nýjar Boeing 737-MAX vélar í notkun fram til ársins 2021. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að Icelandair, eitt dótturfélaga Icelandair Group, er nú með 33 farþegaþotur í notkun.

„Áætlanir okkar um uppbyggingu flugvélaflotans til næstu ára gera ráð fyrir því að árið 2021 verði Icelandair með 41 flugvél í rekstri; 21 Boeing 757, 16 Boeing-MAX og 4 Boeing 767. Þessu til viðbótar verða flugvélar Loftleiða, Air Iceland Connect og Icelandair Cargo. Það má því gera ráð fyrir að flugfloti félagsins verði um 60 vélar árið 2021,“ segir Björgólfur (sjá mynd hér að ofan).

Líkt og fram kom í blaðinu í gær verður WOW air með 24 farþegaþotur í notkun í lok þessa árs, en Icelandair 33. WOW air og Icelandair verða því með samtals 57 þotur í ár.

Atlanta með 14 farþegaþotur

Air Atlanta Icelandic er í þriðja sæti hvað fjölda flugvéla snertir. Félagið er með 14 breiðþotur. Þar af eru 13 af gerðinni 747-400 en ein þotan er af gerðinni Airbus A340. Sex þotur Atlanta eru notaðar til vöruflutninga en átta til farþegaflutninga.

Næst kemur flugfélagið Bláfugl (Bluebird Nordic) en það er með átta fraktvélar í rekstri.

Bláfugl er með íslenskt flugrekstrarleyfi. Það hét áður Bluebird Cargo. Höfuðstöðvarnar eru í Urðarhvarfi í Kópavogi og eru flugvélarnar skráðar á Íslandi.

Samtals eru þessi félög fjögur því með 96 þotur í rekstri í ár. Bláfugl er með fjórar Boeing 737-300 og fjórar Boeing 737-400 þotur í rekstri. Ein 737-400 þota bætist við flotann í næstu viku en á móti fer ein 737-300 þota úr flotanum. Af þessum átta þotum er nú ein í flugi milli Íslands og annarra landa. Hinar eru meira og minna í flugi í Evrópu.

Bæta við einni vél á ári

Steinn Logi Björnsson, forstjóri Bláfugls, segir félagið hafa stækkað hægt og rólega á síðustu árum.

„Við höfum bætt um einni vél við okkur á ári síðustu þrjú ár. Við spilum þetta svolítið eftir því hvernig við metum markaðinn. Hann er ágætur núna. Við erum eingöngu í fraktvélum. Við erum þó líka að opna fyrir þann möguleika að flytja farþega. Þá vil ég taka skýrt fram að það yrði á sama grundvelli og reksturinn í dag. Við myndum þá fljúga fyrir aðra. Slíkt er kallað blautleiga. Þá erum við með flugvélina, áhöfn, viðhald, tryggingar og annað slíkt en flogið er í nafni einhvers annars sem greiðir þá ýmis gjöld. Til dæmis yfirflugsgjöld, lendingargjöld og gjöld fyrir þjónustu og eldsneyti,“ segir Steinn Logi um þetta fyrirkomulag.

Lægri kostnaður á hvert flug

Steinn Logi starfaði í um 20 ár hjá Icelandair.

Spurður hvers vegna svo mikill uppgangur sé í flugi á Íslandi nefnir Steinn Logi nokkur atriði.

„Fram til þessa og yfirleitt flugu flugfélögin aðeins með stórar breiðþotur yfir Norður-Atlantshafið. Þær flugu frá stórborgum í Bandaríkjunum til stórra safnborga í Evrópu. Síðan hófu flugfélögin samvinnu, gerðu með sér bandalag og voru með safnflugvöll á heimaendanum og dreififlugvöll á fjærendanum. Notaðar voru stórar flugvélar og flogin löng vegalengd. Safnað var í vélina á báðum stöðum. Kostnaður við hverja ferð var hár. Það sem við hjá Icelandair gerðum, og vorum fyrstir til að gera, var að vera með langminnstu vélarnar á hafinu. Við gátum gert það með millilendingu í Keflavík. Við vorum fyrstir til að gera þetta með 757-þotunum. Kostnaður við hvert flug var lægri,“ segir Steinn Logi.

Safnar farþegunum saman

Þá bendir hann á að leiðakerfi Icelandair og WOW air bjóði tengingar milli fjölda borga. Þannig safnist ferþegarnir saman.

„Þegar bætt er við einni flugleið eru tengimöguleikarnir auknir með veldisvexti. Ef félag bætir til dæmis við flugi til Glasgow, og er fyrir með tíu flugferðir til Bandaríkjanna, er það að opna tíu flugleiðir með einu flugi,“ segir Steinn Logi.

Skal tekið fram að þessi upptalning er ekki tæmandi. Flugfélagið Ernir er með 4 Jet Stream skrúfuþotur og fær fimmtu vélina, af Dornier-gerð, síðar á árinu. Jet Stream-þoturnar taka 19 í sæti en Dornier-vélin 32. Þá er Norlandair með sex smærri vélar sem eru með 7-19 sæti. Þrjár eru af Twin Otter-gerð, ein er Kingair og tvær af gerðinni AirVan. Loks er Landhelgisgæslan með loftför.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK