Sigrún ráðin framkvæmdastjóri Sinnum

Sigrún Björk Jakobsdóttir.
Sigrún Björk Jakobsdóttir.

Sigrún Björk Jakobsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sinnum heimaþjónustu. Sigrún Björk er hótelrekstrarfræðingur að mennt og hefur víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum og ferðaþjónustu. Sigrún var fyrst kvenna bæjarstjóri á Akureyri en undanfarin sjö ár hefur hún verið hótelstjóri hjá Icelandair hótelinu á Akureyri.  

Sinnum ehf býður upp á velferðarþjónustu til einstaklinga sem þurfa á einhvers konar þjónustu og aðstoð að halda til þess að geta búið heima eða við að lifa daglegu lífi, ýmist vegna aldurs, fötlunar, heilsubrests eða vegna annarra persónulegra aðstæðna. „Langir biðlistar eftir hjúkrunarheimilum hafa þau áhrif að kröfur aukast sífellt um alhliða heimaþjónustu og þar kemur tíu ára reynsla Sinnum að góðum notum,“ segir er haft eftir Sigrúnu Björk í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK