Ríkissjóður keypti í vikunni eigin skuldabréf af Seðlabanka Íslands samtals að fjárhæð 27 milljarðar króna, að því er kemur fram í frétt á vef Stjórnarráðsins.
Um er að ræða bréf í flokknum RIKH 18 fyrir um 4,7 milljarða króna að nafnvirði og í flokknum RIKB 19 fyrir um 21,6 milljarða króna að nafnvirði. Uppgjör viðskipta fór fram í dag.
Heildarkaupverð bréfanna nemur 27,3 milljörðum króna en á móti tók ríkissjóður lán fyrir tæpa 6 milljarða króna í morgun svo að skuldalækkunin nemur um 21 milljarði króna. Kaupin eru fjármögnuð með innstæðum ríkissjóðs hjá Seðlabanka Íslands og með lækkun á almennri sjóðsstöðu.
Í fréttinni kemur fram að eftir þessi viðskipti nemi heildarskuldir ríkissjóðs um 866 milljörðum króna, eða sem samsvarar 32% af VLF, og er þá tekið tillit til útboðs á ríkisbréfum sem fram fór í dag.
„Hrein staða ríkissjóðs reiknuð á grundvelli laga um opinber fjármál, þ.e. þegar sjóðir og innstæður eru dregnar frá heildarskuldum, nemur eftir viðskiptin um 724 milljörðum króna, eða sem nemur um 27% af VLF,“ segir í fréttinni.