Fermetraverð á Akureyri heldur áfram að hækka

Mikil uppbygging er nú í gangi í bænum.
Mikil uppbygging er nú í gangi í bænum. mbl.is/​Hari

Sú ró sem hefur færst yfir fasteignamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu undanfarið ár virðist ekki hafa náð til Akureyrar. Ekki hefur slegið af 12 mánaða hækkunum á fermetraverði líkt og hóf að gerast fyrir ári á höfuðborgarsvæðinu. 

Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans þar sem fjallað er um fasteignaverð á Akureyri. Þar segir að hækkanir nú séu hóflegri en í síðustu uppsveiflu. 

Fram kemur að fermetraverð á Akureyri hafi hækkað um 15,1% milli áranna 2016 og 2017. Frá árinu 2009 hafi fermetraverð hækkað samhliða jafnri fjölgun fasteignaviðskipta.

Mest var hækkunin á Brekkunni og í Innbænum, eða 26,4%, en minnst á Oddeyri, eða 11,2%. Hæsta fermetraverðið mátti finna í Naustahverfi, 346 þúsund. Næst á eftir kom Giljahverfi með 320 þúsund. Lægsta fermetraverðið var á Oddeyri, 220 þúsund, og í Holta- og Hlíðahverfi, 259 þúsund.

Munurinn á dýrasta og ódýrasta hverfinu hélt áfram að aukast á árinu. Munurinn nam um 126 þúsund á fermetra en hann hefur aukist jafnt og þétt frá 2010 þegar hann var 72 þúsund.

Von á frekari hækkunum

„Fermetraverð á Akureyri hefur haldið áfram að hækka þrátt fyrir rólegri tíma á höfuðborgarsvæðinu. Mikil uppbygging nýrra íbúða er nú í gangi bæði í Naustahverfi sem og í Innbænum. Þegar þær fasteignir fara á sölu er því von á að meðalfermetraverð á Akureyri hækki enn frekar. Nýjar íbúðir hafa almennt hærra fermetraverð, auk þess sem staðsetning margra nýju íbúðanna er eftirsóknarverð,“ segir í Hagsjánni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK