Hagnaður Félagsbústaða (FB) nam tæpum 2,4 milljörðum króna á síðasta ári og er hann allur tilkominn vegna hækkunar á virði eigna sem tekur mið af fasteignamati. Tekjur námu rúmum 4 milljörðum og jukust um tæp 10% milli ára.
Aukning tekna skýrist af fjölgun leiguíbúða á árinu 2018 en félagið leigir nú út tæplega 2.600 íbúðir í Reykjavík og vegna vísitölubundinnar hækkunar leiguverðs um 2,8% á árinu. Rekstrargjöld hækkuðu um liðlega 9% milli áranna 2017 og 2018, samkvæmt fréttatilkynningu.
Sjóðstreymi FB sýnir að handbært fé frá rekstri er 558 millj.kr. samanborið við 653 millj.kr. árið áður. Afborganir lána nema 641 millj.kr. Heildarskuldir nema 41.052 millj.kr. og hafa hækkað um 3.643 millj.kr. á árinu en Félagsbústaðir keyptu fasteignir fyrir 2.972 m.kr og vörðu 935 m.kr í viðhald á fasteignum sínum á árinu.
Bókfærður hagnaður af rekstri Félagsbústaða (FB) á árinu 2018 nam 2384 m.kr.
„Félagsbústaðir eru hlutafélag um eignarhald og rekstur félagslegs leiguhúsnæðis í eigu Reykjavíkurborgar. Félagið er stærsti eigandi félagslegs húsnæðis á landinu og um leið stærsta leigufélag landsins. Leiguíbúðum í eigu Félagsbústaða í Reykjavík hefur fjölgað um 400 frá árinu 2014 en í lok árs 2018 áttu Félagsbústaðir 2.618 íbúðir. Stefnt er að því að þær verði orðnar 3.170 árið 2022,“ segir í tilkynningu.
„Aðgengi að stöðugu leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði telst til grundvallar mannréttinda og er lykilatriði þegar kemur að efnahagslegu heilbrigði samfélagsins. Í stöðuskýrslu um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem gefin var út hér á landi á síðasta ári, var aukið framboð á leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði skilgreint sem eitt þeirra verkefna sem vinna þyrfti að á Íslandi. Það stuðlar að betri heilsu og efnahag og auknum tækifærum einstaklinga til félagslegrar þátttöku. Félagslegar leiguíbúðir tryggja fólki með lágar tekjur stöðugan húsakost á viðráðanlegu verði sem kann að vera erfitt að finna á einkamarkaði.
Það er stefna Reykjavíkurborgar að 5% alls leiguhúsnæðis í borginni séu félagslegar leiguíbúðir á hagstæðum kjörum. Reykvíkingar eru um 36% Íslendinga en þeir borga að jafnaði hærra hlutfall af launum sínum til húsnæðis en aðrir landsmenn. Því er enn ríkari þörf fyrir félagslegt leiguhúsnæði á hagstæðum kjörum í Reykjavík,“ segir í tilkynningu.