300 milljóna afgangur

Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri. mbl.is/Hari

Tæplega 300 milljóna króna afgangur var á viðskiptajöfnuði við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2018. Halli á vöruskiptajöfnuði var 37 milljarðar króna en afgangur á þjónustujöfnuði var 33,4 milljarðar króna. Frumþáttatekjur skiluðu 10,1 ma.kr. afgangi en rekstrarframlög 6,3 ma.kr. halla.

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fjórða ársfjórðungi 2018 og erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins. 

Samkvæmt bráðabirgðayfirlitinu námu erlendar eignir þjóðarbúsins 3.386 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.110 ma.kr. Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 276 ma.kr. eða 9,9% af vergri landsframleiðslu (VLF) og versnaði um 77 ma.kr. eða 2,8% af VLF á fjórðungnum.

Hrein fjármagnsviðskipti bættu erlenda stöðu þjóðarbúsins um 41 ma.kr. á fjórðungnum. Erlendar eignir jukust um 13 ma.kr. vegna fjármagnsviðskipta en skuldir lækkuðu um 28 ma.kr. Gengis- og verðbreytingar höfðu neikvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins um 78 ma.kr. Skýrist það aðallega af tæplega 13% verðlækkunum á erlendum verðbréfamörkuðum á ársfjórðungnum. Aftur á móti var rúmlega 3% lækkun á gengi krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum miðað við gengisskráningarvog, segir enn fremur á vef Seðlabanka Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK