Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir rýkur upp lista Forbes yfir ríkustu menn í heimi en nýr listi var gefinn út í dag.
Björgólfur fer upp um 99 sæti og er auður hans metinn á 2,1 milljarð Bandaríkjadala eða um 254 milljarða íslenskra króna á gengi dagsins í dag.
Björgólfur er í 1116. sæti en var í 1215. sæti í fyrra.
Björgólfur á hlut í pólska fjarskiptafyrirtækinu Play og WOM frá Síle. Þá hefur hann einnig fjárfest í rafmyntum og sprotafyrirtækjum á borð við Zwift, BeamUp og Dliveroo, að því er fram kemur á Forbes.