Jökull framkvæmdastjóri Stefnis

Jökull H. Úlfsson.
Jökull H. Úlfsson. Ljósmynd/Aðsend

Jökull H. Úlfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stefnis. Hann mun taka við starfinu af Flóka Halldórssyni og hefja störf 1. apríl. Flóki hefur verið framkvæmdastjóri félagsins síðastliðin 10 ár. Hann lætur af störfum að eigin ósk og mun taka sæti í stjórn Stefnis á aðalfundi sem haldinn verður 18. mars.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Jökull hefur starfað á fjármálamarkaði undanfarin 24 ár. Á árunum 2002 til 2012 starfaði hann við eignastýringu hjá Arion banka og forverum hans. Hann leiddi innleiðingu straumlínustjórnunar hjá bankanum á árunum 2012 til 2015 eða allt þar til hann tók við sem forstöðumaður mannauðs bankans.

Jökull hefur setið í stjórn Stefnis frá árinu 2014. Hann er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

„Undanfarin 10 ár hafa verið viðburðarík í sögu Stefnis og einkennst af markvissri og árangursríkri uppbyggingu sem leidd hefur verið af Flóka Halldórssyni. Þó að hann kjósi nú að leita á ný mið, þá er það ánægjulegt að hann hefur þekkst boð um að taka sæti í stjórn Stefnis á næsta aðalfundi og mun félagið því áfram njóta hans þekkingar og reynslu. Fyrir hönd Stefnis vil ég þakka Flóka hans mikla framlag til félagsins á þessum umbrotatímum, en persónulega fyrir einstaklega ánægjulegt og árangursríkt samstarf í heilan áratug. Ég vil jafnframt bjóða Jökul velkominn til starfa og er þess fullviss að hans víðtæka reynsla muni nýtast félaginu vel til frekari uppbyggingar á komandi árum,“ segir Hrund Rudolfsdóttir, stjórnarformaður Stefnis, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK