Fyrirtækið Origo hf. hefur keypt allt hlutafé í Strikamerki hf. Skrifað var undir kaupsamning þess efnis í dag.
Strikamerki er upplýsingatæknifyrirtæki sem útvegar fyrirtækjum lausnir fyrir rafrænan rekstur í formi vélbúnaðar, hugbúnaðar, ráðgjafar og þjónustu, að því er segir í tilkynningu.
Áherslur fyrirtækisins eru á afgreiðslulausnir, handtölvulausnir og prentlausnir. Helstu viðskiptavinir eru verslanir, vöruhús, veitingahús og önnur þjónustufyrirtæki.
Strikamerki þróar og selur eigin hugbúnaðarlausnir undir vörumerkjunum Snerta og SagaPOS verslunarkerfi, IceLink handtölvulausnir, IceLabel prentlausnir og IceMonitor gagnastýringar. Þessar vörulínur eru í notkun hjá fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum.
Tekjur Strikamerkis hf. voru um 360 milljónir króna árið 2018 og hjá fyrirtækinu starfa 10 manns.
Viðskiptin eru meðal annars háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Stefnt er að því að kaupin gangi í gegn á þriðja ársfjórðungi 2019.
„Kaup Origo á Strikamerki er spennandi áfangi, fyrir Origo, Strikamerki og stóran hóp viðskiptavina okkar. Markmiðið með kaupum á Strikamerki er að breikka lausnaframboð okkur og styrkja á ákveðnum sviðum, einkum í afgreiðslulausnum og tæknibúnað fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi þar sem þróun er hröð og ákall viðskiptavina um aukið hagræði skýrt. Við munum áfram leitast við að þjóna þessum síbreytilegum þörfum viðskiptavina enn betur og eru kaupin á Strikamerki liður í því,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Origo, í tilkynningunni.
Sæmundur Valdimarsson, framkvæmdastjóri Strikamerkis, segir fyrirtækið rúmlega tveggja áratuga gamalt og traust upplýsingatæknifyrirtæki. „Hjá Strikamerki starfar öflugur hópur sérfræðinga sem mun halda áfram að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu,“ segir hann meðal annars í tilkynningunni.