Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 3,4 milljarða króna á 1. ársfjórðungi 2019 eða sem nemur 0,5% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera hafi dregist saman um 4,2% frá 1. fjórðungi 2018. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands.
Samdrátturinn skýrist aðallega af lægri arðgreiðslum fjármálafyrirtækja en á 1. ársfjórðungi 2018 var tekjufærður arður upp á 21,5 milljarða króna samanborið við tæpar 400 milljónir króna á 1. ársfjórðungi 2019. Ef ekki er tekið tillit til arðgreiðslna er áætlað að heildartekjur hins opinbera hafi aukist um 3,2% á tímabilinu.
Áætlað er að heildarútgjöld hafi aukist um 8,1% á 1. ársfjórðungi 2019 frá sama tímabili fyrra árs. Launakostnaður vegur þar þyngst en hann er áætlaður 34,4% af heildarútgjöldum hins opinbera.
Uppfært kl. 16:16: Fréttinn hefur verið breytt í samræmi við uppfærða tilkynningu frá Hagstofunni.