Valitor greiðir bætur í Wikileaks-máli

Dómskvaddir matsmenn mátu tjónið á 3,2 milljarða króna.
Dómskvaddir matsmenn mátu tjónið á 3,2 milljarða króna.

Valitor hefur fallist á að greiða Datacell og Sunshine Press Productions (SPP) 1,2 milljarða króna í skaðabætur vegna slita á samningi um greiðslugátt fyrir söfnunarfé til Wikileaks árið 2011.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur verið gengið frá samkomulagi þess efnis, en skaðabæturnar eru í samræmi við dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í apríl síðastliðnum. Valitor, dótturfélag Arion banka, hafði tilkynnt að það hygðist áfrýja dómnum til Landsréttar.

Dómskvaddir matsmenn mátu tjónið á 3,2 milljarða króna, en dómarar í málinu töldu að veikleikar væru á þeim forsendum sem tölfræðilegir útreikningar matsmanna byggðust á og því væri ekki unnt að leggja niðurstöðu matsgerðarinnar til grundvallar sem sönnunargagn um umfang tjónsins. Krafa um vexti og dráttarvexti aftur í tímann kom ekki til álita, en krafa Datacell og SPP í málinu hljóðaði upp á 8,1 milljarð.

Málið á ræt­ur að rekja til lok­un­ar Valitor árið 2011 á greiðslugátt til Datacell sem safnaði greiðslum fyr­ir Suns­hine Press Producti­ons, fyr­ir­tækið að baki Wiki­leaks. 

Gátt­in var alls lokuð í 617 daga og skaðabótakraf­an bygg­ir á tjón­inu sem fyr­ir­tæk­in urðu fyr­ir á meðan gátt­in var lokuð.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK