Vörumerkjastofan Brandr hefur undirritað samstarfssamning við alþjóðlegu vörumerkjastofuna Saffron Brand Consultants. Samningurinn er gagnkvæmur og felur í sér samstarf, samvinnu og öflun viðskiptatækifæra tengdum ráðgjafaverkefnum í vörumerkjastjórnun og stefnumótun á sviði orkumála, samgangna og sjálfbærni um allan heim.
„Þetta er afar ánægjulegt og ákveðin viðurkenning á þeirri þekkingu og sérhæfingu sem við höfum aflað okkur,“ er haft eftir Friðrik Larsen, framkvæmdastjóra Brandr í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. „Fyrir okkur þýðir þetta aðgangur að tengslum og mannauði einnar virtustu stofu heims á sviði branding en á móti fá þau aðgang að mikilli sérþekkingu á þröngri syllu og það skemmir ekki fyrir að geta komið inn með sérfræðinga í orkumálum frá orkulandinu Íslandi.“
Brandr hefur markað sér sérstöðu undir nafninu LarsEn Energy Branding sem eina ráðgjafafyrirtækið í heiminum sem hefur einbeitt sér að vörumerkjastjórnun í orkugeiranum ásamt því að standa fyrir CHARGE Energy Branding-viðburðum bæði hér heima og erlendis.