Mikil kyrrstaða virðist nú vera á fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt nýrri Hagsjá hagdeildar Landsbankans. Samkvæmt tölum Þjóðskrár hækkaði fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu um 0,2% milli maí og júní. Verð á fjölbýli hækkaði um 0,3% og verð á sérbýli lækkaði um 0,5%.
Þegar horft er yfir 12 mánaða tímabil hefur verð á fjölbýli hækkað um 3,4% og verð á sérbýli um 1,8%. Vegin árshækkun húsnæðisverðs nemur nú 3,4% og er það 0,4 prósentustiga lækkun frá fyrri mánuði.
Viðskipti með fjölbýli skipta hvað mestu máli við mælingar á þróun fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu. Þannig voru viðskipti með fjölbýli um 82% allra viðskipta með íbúðarhúsnæði á árinu 2018. Á síðustu sex mánuðum hefur verð á fjölbýli hækkað um 1% og skiptir 1% verðlækkun í febrúar miklu í því sambandi. Samsvarandi tala fyrir árið 2018 var 1,9% og 11,9% fyrir árið 2017. Eru þessar tölur enn ein birtingarmynd þess að fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu er í mikilli kyrrstöðu.
Segir í Hagsjánni að viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í júní hafi verið mun minni en verið hefur lengi, að undanskildum desember á síðasta ári. Fjöldi viðskipta fyrstu sex mánuði þessa árs voru um 4% minni en á sama tíma fyrir ári og voru viðskiptin í júní í ár um 23% minni en í júní 2018. „Það má því segja að fasteignamarkaðurinn hafi gefið töluvert eftir hvað fjölda viðskipta varðar.“
Þegar horft er til meðalfjölda viðskipta á fyrstu sex mánuðum ársins eru þau um 6% minni en var á öllu árinu 2018.
Óvenjugott veður á höfuborgarsvæðinu í júní og júli þetta árið kann að hafa haft áhrif á að viðskipti með fasteignir voru óvenjulítil, en óvissa í efnahagslífinu er þó einnig talin líkleg skýring. „Þar má bæði nefna óvissu vegna kjarasamninga og áfallið sem hagkerfið varð fyrir í kjölfar gjaldþrots WOW air. Þá hefur framboð íbúða á sölumarkaði aukist verulega og þá er einnig að vænta mikillar aukningar á framboði leiguhúsnæðis.
Allt kann þetta að hafa leitt til biðstöðu á markaðnum. Fólk vill kannski sjá framtíðina betur fyrir sér áður en stórar ákvarðanir eru teknar.“