Andrea nýr framkvæmdastjóri FKA

Andrea Róbertsdóttir.
Andrea Róbertsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Andrea Róbertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, og mun hún taka við starfinu um miðjan október af Hrafnhildi Hafsteinsdóttur sem hefur verið ráðin markaðs- og gæðastjóri Hjallastefnunnar.

Andrea er með víðtæka reynslu á sviði stjórnunar og yfirgripsmikla reynslu af verkefna- og viðburðastjórnun. Hún er með MS-gráðu frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands í mannauðsstjórnun, BA-gráðu í félags- og kynjafræði og MA-diplómu í jákvæðri sálfræði, að því er fram kemur í tilkynningu.

Andrea hefur starfað síðustu ár sem framkvæmdastjóri og forstöðumaður hjá Tali og Kaffitári en einnig sem mannauðsstjóri RÚV. Andrea starfaði sem verkefnastjóri hjá Hjallastefnunni um tíma og sem ráðgjafi á sviði stjórnunar með fókus á breytingastjórnun, heilsueflingu og græn mál fyrirtækja og stofnana. Andrea hefur annast fjölmiðlatengsl, almanna- og kynningarmál og býr yfir margþættri reynslu úr fjölmiðlum. Hún hefur einnig reynslu af stjórnarsetu, segir enn fremur í tilkynningunni. 

„Ég er full tilhlökkunar að mæta til þjónustu reiðubúin,“ segir Andrea sem mun hefja störf sem framkvæmdastjóri FKA 16. október. „Það gustar alltaf ofurkraftur til góðra verka af sterkum hópi ólíkra kvenna sem sækir fram í takt. Það er nákvæmlega þannig sem ég sé FKA fyrir mér. Einstök orka sem léttilega er hægt að tappa á flöskur og flytja út.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK