Lögmannsstofurnar Lögmenn Höfðabakka og Málflutningsstofa Reykjavíkur sameinuðust í eitt fyrirtæki undir heitinu MAGNA lögmenn 1. september. Fram kemur í tilkynningu, að lögmannsstofurnar hafi vegna aukinna umsvifa átt samstarf um skeið í nokkrum málum með góðum árangri.
Með sameiningu verður til lögmannsstofa sem veitir alla almenna lögfræðiþjónustu og býr yfir sérþekkingu á mörgum sviðum. Má þar nefna viðskipta- og félagarétt, þjónustu við fyrirtæki á fjármála- og orkumarkaði, skipta- og sifjarétt, sem og á sviði stjórnsýslu- og sveitarstjórnarréttar, að því er segir í tilkynningunni.
Eigendur hins sameinaða félags eru lögmennirnir Bjarki Þór Sveinsson, Daníel Isebarn Ágústsson, Einar Farestveit, Flóki Ásgeirsson, Gunnar Ingi Jóhannsson, Kristín Ólafsdóttir, Páll Rúnar Mikael Kristjánsson og Þórður Bogason, sem jafnframt er framkvæmdastjóri MAGNA lögmanna.
Þórður segir í tilkynningunni, að sameiningin sé eðlileg þróun sem samrýmist stefnumótun beggja, að skapa stofu með fjölhæfa og öfluga liðsheild. Skrifstofur MAGNA lögmanna eru að Höfðabakka 9, Reykjavík, þar sem Lögmenn Höfðabakka hafa verið til húsa síðustu fjóra áratugi.
Hjá MAGNA lögmönnum starfa 13 lögmenn og lögfræðingar með mikla reynslu, bæði af störfum sínum hérlendis, í Skandinavíu og víðar í Evrópu, auk starfa fyrir fjölþjóðlegar stofnanir.