Norræni fjárfestingabankinn (NIB) og Össur, alþjóðlegt heilbrigðisfyrirtæki sem þróar og framleiðir stoðtæki, hafa skrifað undir 50 milljóna evra, sem svarar til 6,9 milljarða króna, lán til að fjármagna rannsóknar- og þróunaráætlun fyrirtækisins árin 2020-2023.
Össur þróar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. Höfuðáhersla rannsóknaráætlunar fyrirtækisins lýtur að hönnun nýrra vara og endurbótum á núverandi lausnum.
Á hverju ári missa yfir 200.000 einstaklingar í hinum vestræna heimi útlim. Össur þróar gervifætur, -hné og -hendur sem stýrt er af örgjörva og miða að því að auka lífsgæði og öryggi fyrir notendur.
„Stoðtækjalausnir sem stýrðar eru af örgjörva eru byltingarkenndar framfarir í stoðtækjageiranum og bæta lífsgæði fólks svo um munar. Fjárfestingin eflir rannsóknir á þessu sviði og stuðlar að hönnun nýrra vara,“ segir Henrik Normann, forseti og framkvæmdastjóri NIB, í fréttatilkynningu.
Össur er með höfuðstöðvar í Reykjavík. Fyrirtækið er með starfsemi í 26 löndum og hjá því starfa meira en 3.700 manns um allan heim. Össur er skráð í kauphöllinni í Kaupmannahöfn.