Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir hefur verið ráðin sem fjárfestatengill Íslandsbanka.
Margrét Lilja hefur starfað hjá Íslandsbanka frá árinu 2015. Hún hóf störf í áhættustýringu bankans og starfaði síðar sem sérfræðingur á einstaklingssviði. Áður starfaði hún hjá Nordea um tveggja ára skeið við lausafjárstýringu og þar áður hjá Seðlabanka Íslands í markaðsviðskiptum og í alþjóðasamskiptum, að því er bankinn greinir frá í tilkynningu.
Hún er með BSc-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og MSc-próf í haggreiningu og tölulegum aðferðum frá Stockholm School of Economics. Hún er einnig með próf í verðbréfaviðskiptum.