Kreppa er skollin á í Ástralíu, sú fyrsta í tæpa þrjá áratugi en samdrátturinn á öðrum ársfjórðungi mældist 7% og hefur aldrei verið meiri þar í landi.
Nánast allt var lokað í Ástralíu vikum saman vegna kórónuveirunnar og þrátt fyrir að yfirvöld hafi sett milljarða dala inn í efnahagslífið virðist það aðeins vera dropi í hafið hjá mörgum þeirra sem eru í atvinnurekstri.
Tölurnar tala sínu máli, segir fjármálaráðherra Ástralíu, Josh Frydenberg. Þær staðfesta hörmulegar afleiðingar COVID-19 á efnahag landsins. Þar hafi verið hagvöxtur í 28 ár en þetta lengsta hagvaxtartímabil sögunnar hefur nú runnið sitt skeið á enda. Ástæðan er farsótt af þeirri gerð sem sést aðeins einu sinni á öld.
Á fyrsta ársfjórðungi mældist samdrátturinn 0,3% og á öðrum ársfjórðungi var hann 7%.
Samkvæmt niðurstöðum þjóðhagsreikninga er áætlað að landsframleiðslan hafi dregist saman um 9,3% að raungildi á 2. ársfjórðungi 2020 á Íslandi borið saman við sama tímabil fyrra árs. Það er mesti samdráttur sem mælst hefur síðan ársfjórðungslegar mælingar hófust hér á landi.