40 milljarðar til að auka stöðugleika

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Kristinn Magnússon

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að hefja reglulega sölu gjaldeyris á innlendum gjaldeyrismarkaði frá og með mánudeginum 14. september nk. Markmiðið er að auka dýpt gjaldeyrismarkaðarins og bæta verðmyndun. Aukið og stöðugt framboð gjaldeyris ætti að öðru óbreyttu að leiða til aukins stöðugleika á markaðinum.

Frá þessu greinir SÍ. 

Bankinn segir að innlendur gjaldeyrismarkaður hafi ekki farið varhluta af áhrifum COVID-19-farsóttarinnar. Mjög hafi dregið úr veltu og verðmyndun hafi verið óskilvirk. Að mati bankans sé um tímabundna erfiðleika að ræða og megi gera ráð fyrir að markaðurinn færist í eðlilegra horf á ný þegar áhrif farsóttarinnar dvína.

Selur viðskiptavökum 3 milljónir evra hvern viðskiptadag

„Seðlabankinn er reiðubúinn að selja allt að 240 milljónum evra (40 ma.kr.) í reglulegum viðskiptum við viðskiptavaka á gjaldeyrismarkaði til ársloka 2020. Fyrirkomulag viðskiptanna verður hliðstætt því sem áður hefur verið beitt í reglulegum gjaldeyriskaupum bankans. Frá og með mánudeginum 14. september og til mánaðarloka mun Seðlabankinn selja viðskiptavökum 3 milljónir evra hvern viðskiptadag. Viðskiptin munu fara fram fljótlega eftir opnun markaðarins og eigi síðar en kl. 10 árdegis. Bankinn mun í lok hvers mánaðar tilkynna um fjárhæð og ætlaða viðskiptadaga fyrir sölu gjaldeyris í mánuðinum sem í hönd fer og mun fjárhæðin taka mið af aðstæðum á markaði. Miðað verður að því að umfang gjaldeyrissölunnar sé í samræmi við eðlilega virkni markaðarins. Seðlabankinn áskilur sér því fullan sveigjanleika til að aðlaga fjárhæð, tíðni og framkvæmd sölunnar til að tryggja skilvirkni aðgerðarinnar,“ segir í tilkynningu bankans. 

Fjárhæðin er um 4% af gjaldeyrisforðanum

Þá segir að reglubundin gjaldeyrissala hafi ekki áhrif á yfirlýsta stefnu bankans um að grípa inn í á gjaldeyrismarkaði til að draga úr sveiflum eftir því sem hann telur tilefni til.

„Gjaldeyrisforði bankans nam 973 ma.kr. í lok ágúst 2020. Þar af nam hrein gjaldeyriseign 730 ma.kr. Fjárhæðin sem bankinn er reiðubúinn að selja það sem eftir lifir ársins er nú um 4% af gjaldeyrisforðanum og um 5½% af hreinni gjaldeyriseign bankans.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK