Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri fjármála Orkuveitu Reykjavíkur, hefur sagt starfi sínu lausu. Greint er frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Bjarni Freyr Bjarnason, sem verið hefur staðgengill framkvæmdastjóra fjármála um árabil, mun gegna starfinu þar til annað verður ákveðið. Tilgreint er að starf framkvæmdastjóra fjármála verði auglýst á næstu dögum.