Fjögur vilja leiða Rannís

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir mun skipa nýjan forstöðumann Rannís.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir mun skipa nýjan forstöðumann Rannís. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjórar umsóknir bárust mennta- og menningarmálaráðuneytinu um embætti forstöðumanns Rannsóknarmiðstöðvar Íslands, Rannís, sem auglýst var laust til umsóknar nýlega.

Stofnunin er þjónustu- og umsýslustofnun sem hefur það hlutverk að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu. Rannís mun heyra undir nýtt ráðuneyti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar og er ráðgert að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skipi nýjan forstöðumann, til fimm ára, frá 1. apríl 2021. Hallgrímur Jónasson lætur af störfum sem forstöðumaður, en hann hefur gegnt embættinu frá því árið 2008. Áður var hann forstjóri Iðntæknistofnunnar frá árinu 1992.

Þau fjögur sem sóttu um eru:

  • Ágúst Hjörtur Ingþórsson, sviðsstjóri.
  • Erlendur Helgason, teymisstjóri.
  • Ingunn Björnsdóttir, dósent og námsvistunarstjóri.
  • Una Strand Viðarsdóttir, sérfræðingur og staðgengill skrifstofustjóra
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK