Nýir forstöðumenn hjá Krónunni

Í efri röð eru þau Guðrún Aðalsteinsdóttir og Sigurður Gunnar …
Í efri röð eru þau Guðrún Aðalsteinsdóttir og Sigurður Gunnar Markússon. Í þeirri neðri þeir Jón Ingi Einarsson og Bjarni Friðrik Jóhannesson. Samsett mynd

Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar hjá Krónunni og hafa tveir nýir forstöðumenn bæst í hóp stjórnenda Krónunnar, þeir Bjarni F. Jóhannesson sem tekur við stöðu forstöðumanns innkaupa og vöruflokkastýringar og Jón Ingi Einarsson sem tekur við sem forstöðumaður vörustýringar.

Bjarni Friðrik Jóhannesson hefur starfað hjá Krónunni og tengdum félögum frá árinu 2006. Hann var deildarstjóri innkaupadeildar og vöruflokkastýringar frá janúar 2021, framkvæmdastjóri vörugreiningardeildar frá 2019 og rekstrarstjóri Nóatúns frá 2006. Bjarni er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, að því er segir í tilkynningu frá Krónunni

Jón Ingi Einarsson hefur starfað hjá Krónunni með hléi frá árinu 2004. Hann starfaði áður sem sérfræðingur innan innkaupadeildar Krónunnar eða frá september 2020, framkvæmdastjóri Ekrunnar frá 2014, sölustjóri sama fyrirtækis frá 2007 og vöruflokkastjóri hjá Kaupási, forvera Krónunnar, frá 2004. Hann er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og stundar MBA nám við Háskóla Íslands samhliða starfi.

Jafnframt tekur Guðrún Aðalsteinsdóttir við nýju sviði stafrænnar þróunar og umbótaverkefna innan Krónunnar en hún var áður forstöðumaður innkaupa og vörustýringar. Stafræn þekking er sífellt að verða mikilvægari í verslunarrekstri, þar liggja gríðarleg tækifæri til vaxtar, hagræðingar og bættrar þjónustu við viðskiptavini en nefna má að Krónan býður upp á netverslun og Skannað og skundað sjálfsafgreiðslulausn í gegnum Snjallverslun, þá fyrstu sinnar tegundar á Íslandi. Sigurður Gunnar Markússon, sem áður var forstöðumaður viðskiptaþróunar, tekur við sem forstöðumaður þróunar og uppbyggingar verslana, en á næstunni munu þrjár nýjar Krónuverslanir opna í Borgartúni, Skeifunni og á Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK