Fyrirtækið Olís hefur ákveðið að breyta vörumerkjunum Olís og ÓB.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að undanfarna mánuði hafi Olís „stigið fyrstu skrefin í umbreytingavegferð félagsins“.
Sú vegferð feli í sér meðal annars í sér breyttar áherslur í vöru- og þjónustuframboði Olís, samhliða uppfærslu á ásýnd vörumerkja og þjónustustöðva.
„Andlitslyfting á vörumerkjum Olís og ÓB endurspeglar þær breytingar sem við erum að kynna til leiks í starfsemi félagsins. Olís er rótgróið og traust vörumerki og fyrirtækið á sér mikla sögu. Við vildum sýna sögunni virðingu en um leið nútímavæða útlit vörumerkisins,“ er haft eftir Frosta Ólafssyni, framkvæmdastjóra Olís, í tilkynningu.
„Jafnframt viljum við tengja útlit vörumerkjanna Olís og ÓB betur saman, en ólík litasamsetning þeirra endurspeglar mismunandi áherslur í þjónustustigi og verðlagningu. Á næstu mánuðum munum við kynna fleiri nýjungar í þjónustu- og vöruframboði fyrirtækisins samhliða ýmsum ásýndarbreytingum,“ segir Frosti.
„Vegferðin okkar miðar fyrst og fremst að því mæta þörfum viðskiptavina á breiðari grunni en við höfum gert hingað til. Hjá Olís finnurðu vini við veginn og allir eru velkomnir. Við hlökkum til framhaldsins og búum vel að því að fyrirtækið byggir á traustum grunni og gildum.“
Olís rekur um 70 þjónustu og sjálfsafgreiðslustöðvar um allt land undir merkjum Olís og ÓB. Breytt vörumerki Olís og ÓB eru sögð munu birtast jafnt og þétt á afgreiðslustöðum fyrirtækisins á næstu dögum og vikum.