Landsbankahúsið á Ísafirði í endurnýjun lífdaga

Regus Bank skrifstofusetrið á Ísafirði, ber nafn sitt af fyrri …
Regus Bank skrifstofusetrið á Ísafirði, ber nafn sitt af fyrri notkun hússins sem hýsti til Landsbankann til lengri tíma.

Regus hefur opnað nýja fjarvinnuaðstöðu að Pólgötu 1 á Ísafirði, þar sem aðstaða er fyrir allt að 30 manns til að starfa saman á skrifstofum, í fundarherbergjum og opnum vinnurýmum.

Tómasar Ragnarz, eigandi Regus á Íslandi, segir í tilkynningu frá félaginu að opnunin á Ísafirði sé í samræmi við stefnu fyrirtækisins um að opna slíkar fjarvinnustöðvar um allt land á komandi misserum. Það sé byggðamál að tryggja góðar vinnuaðstæður á landsbyggðinni, þannig að fólk geti raunverulega sinnt störfum án staðsetningar.

Pólgata 1 á Ísafirði hýsti áður útibú Landsabankans, en bankinn flutti úr húsínu í fyrra. Pólgata 1, sem gjarnan er kölluð Landsbankahúsið, er jafnan talið eitt helsta kennileiti bæjarins en við byggingu hússins á árunum 1956 til 1958 var stuðst við teikningar Guðjóns Samúelssonar, en arkitekt var Bárður Ísleifsson.

Við endurbætur á húsinu gerði Regus sögu hússins hátt undir höfði. Þannig er eitt fundarherbergjanna í gömlu bankahvelfingunni auk þess sem nafn útibúsins, Regus Bank Ísafirði, vísar til sögu þess sem bankaútibús.

Það sé stefna Regus að opna sambærilegar fjarvinnustöðvar um allt land á komandi misserum, en nýlega opnaði Regus útibú í Borgarnesi.

„Við erum þakklát fyrir móttökurnar á Ísafirði sem hafa verið framar okkar björtustu vonum. Það er mikill heiður að fá að nýta þetta sögufræga hús og við getum stolt sagt að þar sé nú að finna glæsilegustu skrifstofu á Vestfjörðum – og þó víðar væri leitað,“ segir Tómas Ragnarz í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK