Fær meira út úr raforkukerfinu

Íris Baldursdóttir og Eyrún Linnet, stofnendur Snerpa Power.
Íris Baldursdóttir og Eyrún Linnet, stofnendur Snerpa Power. mbl.is/Árni Sæberg

Íris Baldursdóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Snerpu Power, og Eyrún Linnet, stjórnarformaður og meðstofnandi, segja nýja lausn fyrirtækisins geta bætt nýtingu á orkukerfinu á Íslandi.

Þá segir Íris að lausnin bjóði upp á tekjumöguleika.

„Ég veit hvað svona lausn getur gert mikið fyrir notandann, sem fær tækifæri til að selja brot af sínu rafmagni til baka upp á net á samkeppnishæfu verði þegar reksturinn býður upp á það. Hann fær því tekjur af sölunni og lækkar heildarraforkukostnað sinn.

Með nýrri tækni er hægt að bæta nýtinguna í raforkukerfinu.
Með nýrri tækni er hægt að bæta nýtinguna í raforkukerfinu. mbl.is/RAX

Dregur úr álagstoppum

Þetta eykur líka hagræði í raforkukerfinu öllu og dregur úr álagstoppum. Lausnin gerir kerfið skilvirkara og er hagræðing fyrir alla. Við Eyrún ræddum svo saman en hún hefur mikla reynslu af notendahliðinni og mjög fljótlega varð ljóst að við deildum þessari sýn og ákváðum að gera hana að veruleika þannig að allir stórnotendur nytu góðs af,“ segir Íris.

Íris lýsir lausninni sem brú milli markaðarins og stórnotandans.

„Hún tengir saman gagnastrauma og sjálfvirknivæðir ferla sem eru að miklu leyti handvirkir hjá stórnotendum í dag. Lausn okkar sjálfvirknivæðir og bestar alla álagsáætlana- og tilboðsgerð þeirra, lágmarkar frávik í raforkupöntunum og gefur fulla yfirsýn yfir raforkunotkun sem og tekjur og kostnað tengdan raforkukaupum og -sölu,“ segir Íris.

Ítarlegt viðtal við þær birtist í ViðskiptaMogganum í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK