Jón Haukur Arnarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar við Háskólann í Reykjavík og hefur störf í upphafi næsta árs. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá skólanum.
Jón kemur til með að stýra rekstrarsviði HR, sem sér meðal annars um upplýsingatækni, fasteignir, Opna háskólann í HR, fjölbreytta nemendaþjónustu og ýmsa stoðþjónustu fyrir nemendur og starfsfólk.
Framkvæmdastjóri rekstrar situr einnig í framkvæmdaráði HR, ásamt sviðsforsetum, deildarforsetum, fjármálastjóra, mannauðsstjóra, formönnum náms- og rannsóknaráða, formanni Stúdentafélags HR auk rektors.
Jón Haukur hefur undanfarin sjö ár verið sviðsstjóri rekstrarsviðs hjá Matís ohf. Fyrir það, frá árinu 2008 fram til ársins 2015, var hann rekstrarstjóri, mannauðsstjóri og verkefnastjóri hjá Matís.
Áður var Jón meðal annars yfirmaður rannsóknarstofu hjá Hilton Meats Retail Ltd. í Bretlandi, gæðastjóri hjá Coors Brewing Company í Colorado og sérfræðingur í bókhaldi hjá lífeyrisdeild Kaupþings.
Árin 2013 til 2015 var Jón Haukur stjórnarmaður hjá Marinox ehf., sem sérhæfir sig í framleiðslu lífvirkra efna úr þangi. Frá árinu 2015 hefur hann setið í stjórn UNA skincare, sem framleiðir snyrtivörur með lífvirkum innihaldsefnum úr þangi.
Jón Haukur lauk B.Sc.-gráðu í matvælafræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og meistaragráðu í viðskiptafræði með áherslu á rekstrar- og gæðastjórnun frá HÍ og Colorado University at Boulder árið 2004. Hann lauk GMP-stjórnendaþjálfun við Harvard Business School árið 2015.