Bæði Fosshótel og Flugleiðahótel standa í málarekstri gegn leigusölum sínum vegna vangreiddrar leigu í upphafi faraldurs.
Dómsniðurstöður í báðum málum eru á öndverðum meiði og því ríkir réttaróvissa um efndaskyldur leigutaka. Tekist er á um hvort leigusalar þurfi að taka þátt í því tjóni sem rekstraraðilar hótela urðu fyrir í faraldri.
Aðalmeðferð í máli Flugleiðahótela fer fram fyrir Landsrétti í dag. Niðurstöður málsins munu hafa töluverða þýðingu.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.