Frá Landsbankanum til Arion banka

Albert (til vinstri) og Siggeir.
Albert (til vinstri) og Siggeir. Ljósmynd/Aðsend

Siggeir Vilhjálmsson og Albert Guðmann Jónsson hafa hafið störf á viðskiptabankasviði Arion banka. Siggeir hefur tekið við starfi aðstoðarframkvæmdastjóra sviðsins og Albert Guðmann Jónsson tekið við starfi forstöðumanns vörustýringar. Báðir koma þeir frá Landsbankanum.

Siggeir starfaði hjá Landsbankanum í rúm 25 ár, síðast sem forstöðumaður viðskiptalausna einstaklinga og sem staðgengill framkvæmdastjóra einstaklingssviðs. Áður starfaði hann á upplýsingatæknisviði bankans og á fyrirtækjasviði við að þróa stafrænar viðskiptalausnir.

Siggeir er tölvunarfræðingur að mennt og með MBA frá Háskóla Íslands, að því er kemur fram í tilkynningu.

Albert starfaði hjá Landsbankanum í um 18 ár og var deildarstjóri framþróunar í viðskiptalausnum einstaklinga. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og með meistaragráðu í upplýsingastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK