Viðræður um sameiningu VÍS og Fossa

Vátryggingafélag Íslands (VÍS) og hluthafar Fossa fjárfestingarbanka hafa ákveðið að hefja viðræður um kaup VÍS á öllu hlutafé í Fossum á grundvelli viljayfirlýsingar um sameiningu félaganna.

Félögin telja að fyrirhuguð sameining muni styrkja þau til sóknar á spennandi tímum á fjármálamarkaði, að því er kemur fram í tilkynningu frá VÍS.

Gert er ráð fyrir að hluthafar Fossa fjárfestingarbanka fái 260 milljón nýja hluti í VÍS fyrir hlutabréf sín, sem nemur 13,3% hlutafjár í VÍS eftir hlutafjáraukningu. Kaupin yrðu háð ýmsum skilyrðum, svo sem niðurstöðu áreiðanleikakannana, samþykki eftirlitsstofnana og samþykki hluthafafundar VÍS.

Guðný Helga Herbertsdóttir.
Guðný Helga Herbertsdóttir.

Í upphafi er lagt upp með að Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, og Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka, muni sameiginlega leiða félagið. Framtíðarskipulag samstæðu verður skoðað á næstu vikum, með tilliti til vaxtar, stjórnarhátta og hagræðingar.

Skrefinu á undan

„Hröð samfélags- og tækniþróun með aukinni fjártækni, nýrri samkeppni og dreifileiðum á markaði hefur umbreytt samkeppnisumhverfi trygginga- og fjármálamarkaða. VÍS er í sterkri stöðu til að mæta og taka þátt í þessari þróun. Mikilvægt er að félagið sé skrefinu á undan og verði virkur þátttakandi í þróun fjármálastarfsemi hér landi, með áherslu á arðsaman vöxt og eignastýringu. Fyrsta skrefið í að víkka út starfsemi félagsins á fjármálamarkaði var stofnun SIV eignastýringar ─ en með sameiningu við Fossa fjárfestingarbanka eru tekin markviss skref í átt að framtíðarsýninni, sem er að verða spennandi valkostur á íslenskum fjármálamarkaði, ásamt því að auka og efla tekjustoðir félagsins,“ segir Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður VÍS, í tilkynningunni.

Haraldur Þórðarson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka, bætir við:

„Fossar fjárfestingarbanki hefur verið í sókn undanfarin ár og hefur þjónustað innlenda sem og erlenda fjárfesta á sviði markaðsviðskipta, fyrirtækjaráðgjafar og eignastýringar. Á síðasta ári fékk félagið fjárfestingarbankaleyfi sem fól í sér aukin tækifæri í þjónustu og umsvifum á fjármálamarkaði. Sameining VÍS og Fossa fjárfestingarbanka felur í sér spennandi tækifæri ─ enda eru félögin í ákjósanlegri stöðu til vaxtar á íslenskum fjármálamarkaði,“ segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK