Björgvin ráðinn innkaupa- og aðstoðarframkvæmdastjóri Bónus

Björg­vin Vík­ings­son, fráfarandi forstjóri Ríkiskaupa.
Björg­vin Vík­ings­son, fráfarandi forstjóri Ríkiskaupa. Kristinn Magnússon,Kristinn Magnússon / Kristinn Magnússon

Björgvin Víkingsson hefur verið ráðinn innkaupastjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri Bónus. 

Björgvin hefur starfað sem forstjóri Ríkiskaupa frá árinu 2020 en hann er með meistaragráðu í aðfangakeðjustjórnun frá ETH háskólanum í Zurich og B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands. 

„Björgvin hefur víðtæka reynslu af innkaupum og vörustjórnun hjá alþjóðlegum fyrirtækjum á borð við Maersk, Aasted Aps, DT Group og Marel hf. Þá hefur Björgvin jafnframt haldið vinnustofur og kennt vörustjórnun og stefnumarkandi innkaup við Háskólann í Reykjavík,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK