Hætta viðskiptum við Íslandsbanka

Neytendasamtökin hafa ákveðið að senda Íslandsbanka út á guð og …
Neytendasamtökin hafa ákveðið að senda Íslandsbanka út á guð og gaddinn. mbl.is/Samsett mynd

„Stjórn Neytendasamtakanna fól framkvæmdastjóra að færa viðskiptin til annars banka,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, í samtali við mbl.is um niðurstöðu stjórnarfundar samtakanna sem rétt í þessu var að ljúka. Er ákvörðunin tekin í kjölfar sáttar Íslandsbanka við Seðlabanka Íslands um greiðslu hárrar sektar í kjölfar rannsóknar Fjármálaeftirlitsins vegna brota Íslandsbanka við sölumeðferð eignarhluta ríkisins í bankanum.

Hvetja til kosninga með veskinu

„Við munum væntanlega ekki höggva stórt skarð í viðskiptamannahóp bankans en svona siðferðislega, og táknrænt aðallega, tökum við þessa ákvörðun. Nú hefur framkvæmdastjóra verið falið að skipta um viðskiptabanka vegna þess sem fram hefur komið í fjölmiðlum. Við viljum ganga á undan með góðu fordæmi, við hvetjum jú oft félagsmenn til að kjósa með veskinu,“ heldur Breki áfram.

Segir hann Neytendasamtökin með ákvörðuninni sýna afstöðu sína til þeirra mála sem upp hafa komið í tengslum við stjórnendur bankans og „kúltúrinn í Íslandsbanka“.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK