Yfirgefur bankann „með miklum trega“

Birna Einarsdóttir hefur verið bankastjóri Íslandsbanka í tæp 15 ár.
Birna Einarsdóttir hefur verið bankastjóri Íslandsbanka í tæp 15 ár. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Það er með miklum trega sem ég yfirgef Íslandsbanka enda hef ég starfað hjá bankanum og forverum hans í um 30 ár,“ segir í tilkynningu Birnu Einarsdóttur, en í morgun var greint frá því að hún hefði sagt upp störfum sem bankastjóri Íslandsbanka. 

Tilkynning Birnu var send út rétt eftir tilkynningu bankans um starfslok hennar, rétt fyrir klukkan fjögur í nótt. 

Ég hef ákveðið að stíga til hliðar sem bankastjóri Íslandsbanka með hagsmuni bankans að leiðarljósi svo ró geti myndast vegna sáttar Íslandsbanka við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Með því axla ég ábyrgð á mínum þætti málsins,“ segir í yfirlýsingu Birnu. 

Óskar stjórnmálamönnum velfarnaðar

Hún segir að umræðan um sáttina hafi verið óvægin og minnist á að ýmsum stjórnmálamönnum hefur verið tíðrætt um afsögn mína. „Ég óska þeim velfarnaðar í þeirra störfum.“

Birna segir að lokum að hún kveðji bankann með söknuði en sátt við sitt verk. 

Yfirlýsing Birnu í heild sinni:

Ég hef ákveðið að stíga til hliðar sem bankastjóri Íslandsbanka með hagsmuni bankans að leiðarljósi svo ró geti myndast vegna sáttar Íslandsbanka við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Með því axla ég ábyrgð á mínum þætti málsins. Umræðan hefur verið óvægin og ýmsum stjórnmálamönnum hefur verið tíðrætt um afsögn mína. Ég óska þeim velfarnaðar í þeirra störfum. 

Það er með miklum trega sem ég yfirgef Íslandsbanka enda hef ég starfað hjá bankanum og forverum hans í um 30 ár. Starfsævi mín hefur nánast öll verið helguð bankanum og okkur hefur tekist að byggja upp eitt öflugasta fyrirtæki landsins með einstökum starfsmannahópi. Ég hef eignast marga góða vini bæði í hópi starfsfólks og viðskiptavina. Sátt fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands snýr eingöngu að þessu eina verkefni, að öðru leyti hefur ferill minn hjá bankanum verið farsæll. 

Undir minni stjórn, sem bankastjóri, hefur eigið fé bankans aukist um næstum 150 milljarða auk þess sem ríflega 110 milljarðar hafa verið greiddir í arð til hluthafa.

Okkur hefur tekist að ná fram fjölda sigra á fjármálamarkaði með mannleg gildi að leiðarljósi. Ég kveð bankann með söknuði en sátt við mitt verk. Ég óska öllu mínu samstarfsfólki góðs gengis og vona innilega að með þessu skapist friður í kringum fyrirtækið og fólkið sem mér þykir svo vænt um.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK