Birna segir upp störfum og Jón Guðni tekur við

Birna Einarsdóttir og Jón Guðni Ómarsson.
Birna Einarsdóttir og Jón Guðni Ómarsson. Samsett mynd

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hefur óskað eftir því að láta af störfum sem bankastjóri. Stjórn bankans og Birna hafa gert samkomulag um starfslok hennar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum sem var send út rétt fyrir klukkan fjögur í nótt. 

Stjórn bankans hefur ráðið Jón Guðna Ómarsson í starf bankastjóra.

Jón Guðni hefur starfað hjá Íslandsbanka og forverum hans frá árinu 2000 og gegnt starfi framkvæmdastjóra fjármála bankans frá 2011. Hann mun áfram gegna stöðu framkvæmdastjóra fjármála þar til ráðið hefur verið í þá stöðu.

Fyrir hönd stjórnar vil ég þakka Birnu Einarsdóttur fyrir mörg farsæl ár í starfi hjá bankanum. Birna hefur byggt upp sterkan banka og öfluga liðsheild sem við munum áfram búa að. Hún hefur að sönnu verið hreyfiafl og haldið gildum um jafnrétti, fjölbreytileika og sjálfbærni á lofti innan sem utan fyrirtækisins. Við óskum Birnu velfarnaðar í framtíðinni,“ er haft eftir Finni Árnasyni, stjórnarformanni Íslandsbanka. 

„Stjórn bankans þekkir vel til starfa Jóns Guðna sem hefur yfirgripsmikla reynslu af störfum á fjármálamarkaði og mun leiða bankann á þeirri vegferð sem framundan er.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK