Eðvald ráðinn fjármálastjóri hjá Sýn

Eðvald Gíslason.
Eðvald Gíslason. Ljósmynd/Aðsend

Eðvald Gíslason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Sýn hf. Hann tekur við starfinu af Kristínu Friðgeirsdóttur sem lét af störfum fyrr í mánuðinum.

Fram kemur í tilkynningu að Eðvald sé reyndur stjórnandi með víðtæka reynslu úr fjármálageiranum. 

Hann kemur til Sýnar frá Kviku þar sem hann kom á fót og veitti hagdeild forstöðu. Hagdeildin hefur verið í lykilhlutverki í stafrænni framþróun fjármálasviðs. Þar áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Greiðslumiðlun Íslands og við greiningar hjá NextCODE, CCP og Nykredit banka í Danmörku.

Eðvald útskrifaðist með meistaragráðu í verkfræði með áherslu á hagnýta stærðfræði frá DTU í Danmörku árið 2010 en lauk B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2005.

„Ég er sannfærð um að yfirgripsmikil reynsla og þekking Eðvalds muni reynast Sýn vel. Eðvald er með víðtæka reynslu úr fjármálageiranum og hefur gegnt lykilhlutverki í stafrænni framþróun fjármálasviðs Kviku. Ég er virkilega spennt og hlakka til að fá hann til liðs við okkur hjá Sýn,” segir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, í tilkynningunni.  

Eðvald Gíslason hefur þetta að segja: „Ég er fullur tilhlökkunar að hefja störf hjá Sýn og taka þátt í þeirri vegferð sem félagið er á. Sýn hefur gengið í gegnum miklar breytingar á undanförnum árum og framundan eru spennandi tímar á krefjandi markaði. Mikilvægt er að byggja upp öfluga innviði til að styðja við gagnadrifna ákvörðunartöku hjá félaginu. Fjármálasvið er þar í lykilhlutverki og er ég þakklátur fyrir að vera sýnt það traust að fá að leiða sviðið,” segir hann í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK