Kristín lætur af störfum

Kristín Friðgeirsdóttir.
Kristín Friðgeirsdóttir. Ljósmynd/Háskólinn í Reykjavík

Sýn hf. og Kristín Friðgeirsdóttir hafa gert samkomulag um að Kristín láti af störfum sem fjármálastjóri fyrirtækisins. Kristín hefur gengt þeirri stöðu frá árinu 2021.

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

„Við þökkum Kristínu fyrir hennar framlag til félagsins á undanförnum árum og óskum henni velfarnaðar. Kristín lætur af daglegum störfum á næstu dögum en verður félaginu innan handar þar til eftirmaður verður ráðinn,” segir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar í tilkynningu. 

„Síðustu ár hafa verið viðburðarrík á fjármálasviði Sýnar og mörgum stórum verkefnum nú lokið. Það er því eðlilegt að annar taki við keflinu. Ég vil þakka öllu starfsfólki Sýnar fyrir frábært samstarf og óska þeim alls hins besta," er haft eftir Kristínu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK