Flutt heim til mömmu og pabba

Anne Hathaway og Steve Carell fara með aðalhlutverkin í Get …
Anne Hathaway og Steve Carell fara með aðalhlutverkin í Get Smart. Reuters

Leikkonan Anne Hathaway er flutt heim til mömmu og pabba í New York eftir að hún og unnustinn Raffaello Follieri hættu saman. Er Hathaway sátt í faðmi foreldranna enda sé samband hennar við þau eins og best verður á kosið.

Hathaway, sem meðal annars lék í kvikmyndinni Get Smart, hætti með ítalska kaupsýslumanninum Rafaello nokkrum dögum áður en hann var ákærður fyrir peningaþvætti og fjársvik. Hefur bandaríska alríkislögreglan, FBI, meðal annars leitað í íbúð parsins að gögnum í tengslum við rannsóknina á Rafaello.

Hefur leikkonan afhent lögreglunni gjafir sem Rafaello gaf henni á meðan fjögurra ára ástarsambandi þeirra stóð og eru gjafirnar metnar á þúsundir Bandaríkjadala. Er hún gjörsamlega miður sín vegna ákærunnar enda kom þetta henni í opna skjöldu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg