Fékk sér bíl í stíl við fötin

Paris Hilton mætti í bláum kjól á Golden Globe þannig …
Paris Hilton mætti í bláum kjól á Golden Globe þannig að hún hefur væntanlega ekið um á bláa Bentleyinum það kvöld. Reuters

Paris Hilton virðist ekki velta efnahagsmálum heimsins mikið fyrir sér ef marka má fregnir af bílakaupum stúlkunnar. Sást til hennar á bláum Bentley um daginn í stíl við fötin sem hún var klædd en nokkru áður ók hún um á bleikum Bentley enda klædd bleikum fötum þann daginn, að minnsta kosti þá stundina.

Paris Hilton komst í fréttirnar í síðasta mánuði er hún keypti sér bleikan Bentley á 200 þúsund Bandaríkjadali, 25,3 milljónir króna. Fékk hún bifreiðina í jólagjöf - frá sjálfri sér. Lét hún hafa eftir sér að hana hafi alltaf dreymt um að eignast bleikan bíl. „Ég held að þegar þú ert lítil stúlka og átt Barbie Corvette þá langar þig í slíka bifreið. O ég vildi óska þess að ég myndi eignast slíka bifreið einhvern daginn. Svo ég held að þetta sé afleiðing af því að vera aðdáandi Barbie svona lengi. Þetta er þannig bifreið að ég get ekki ekið henni á hverjum degi en ég mun aka henni mikið. Þeir settu vörn á rúðurnar þannig að leiftur æsifregnaljósmyndaranna kemst ekki inn um rúðurnar," segir Hilton.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg