Lykillinn að því að halda dampi út Airwaves hátíðina er að vera með bíl fullan af bjór sem hægt er að koma við í og sækja sér veigar á milli tónleika. Þetta ráð er í boði hljómsveitarinnar Rökkurróar sem talar af reynslu en þau eru að koma fram á sinni sjöundu hátíð og hafa verið gestir frá 14 ára aldri.
mbl.is heldur áfram að hita upp fyrir Airwaves, sem hefst í næstu viku, með því að spjalla við tónlistarfólk.
Rökkurró kemur fram á fimmtudeginum í Iðnó og á sunnudeginum á Gauk á Stöng.