Tvennum sögum fer af því hvort hertogaynjan Katrín Middleton sé í raun ólétt af þriðja barni þeirra Vilhjálms líkt og margir miðlar greindu frá í gær.
The Inquisitr segir starfsmenn bresku hirðarinnar hafa staðfest í samtali við miðilinn að hún sé aðeins að taka því rólega eftir fæðingu Karlottu prinsessu.
Frétt mbl.is: Ólétt aftur?
Slúðurmiðlar velta fjarveru hertogaynjunnar frá ýmsum opinberum viðburðum að undanförnu fyrir sér, þá sérstaklega fjarveru hennar úr brúðkaupi í síðasta mánuði. Katrín mætti ekki og tók Vilhjálmur mágkonu sína, Pippu Middleton, með sér í brúðkaupið. Vilhjálmur er sagður hafa mætt án Katrínar í óvenju mörg brúðkaup síðustu tvö ár, eða eftir fæðingu Georgs prins.
Slúðurmiðillinn Celebdirtylaundry gengur aftur á móti svo langt að halda því fram að fjarvera Katrínar sé vegna hjónabandsörðugleika. Elísabet drottning hafi tekið eftir vandræðum þeirra og hafi óskað eftir fundi með þeim tveimur. Þá segir miðilinn einnig að Katrín vilji alls ekki þriðja barnið núna, það myndi aðeins tryggja það að Vilhjálmur haldi framhjá.