Rudolph Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, útilokar ekki að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna árið 2008 fyrir repúblikana. Þetta sagði Giuliani í dag, en hann er hér staddur í boði forseta Íslands. Þetta kom fram í fréttum Sjónvarps.