Átta létust í árás á sjónvarpsstöð í Bagdad

Byssumenn sem réðust að sjónvarpsstöð í Bagdad í morgun drápu átta manns, einkum öryggisverði. Sjónvarpsstöðin, sem ber nafnið Shaabiya, hafði nýlega hafið tilraunaútsendingar í Zayouna, í austurhluta borgarinnar og var einkum ætlað að höfða til súníta. Talið er að árásirnar tengist átökum súníta og sjíta, en deilur þeirra á milli stigmagnast þrátt fyrir tilraunir yfirvalda til að stöðva ofbeldisölduna.

Um 2.660 óbreyttir íraskir borgara týndu ĺifi í septembe
Um 2.660 óbreyttir íraskir borgara týndu ĺifi í septembe AP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert