Hillary Clinton vill brjótast upp úr glerþakinu

Hillary Clinton vill brjótast upp úr glerþakinu.
Hillary Clinton vill brjótast upp úr glerþakinu. Reuters

Hillary Rodham Clinton sem sækist eftir að verða forsetaframbjóðandi Demókrata í Bandaríkjunum biðlaði í dag til bandarískra kvenna og hvatti þær til að aðstoða sig við að komast upp úr hæsta glerþaki Bandaríkjanna með því að kjósa hana til forsetaembættisins.

Ósýnilegar hömlur sem koma í veg fyrir framgöngu kvenna og minnihlutahópa innan fyrirtækja eða félaga eru oft nefnd glerþök.

„Núna eru flestir kjósendur kvenkyns, flestir stúdentar í háskólum eru konur og í þinginu erum við farnar að láta finna fyrir nærveru okkar. En það eru enn allt of fáar konur sem eru leiðtogar,” sagði Clinton á fjáröflunarfundi sem 1,300 manns sóttu til stuðnings kvenna innan Demókrataflokksins sem styðja rétt til fóstureyðinga

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert