3 daga gömlu barni rænt á sjúkrahúsi í Texas

Mynd úr öryggismyndavél sýnir konuna ganga út úr sjúkrahúsinu með …
Mynd úr öryggismyndavél sýnir konuna ganga út úr sjúkrahúsinu með litlu stúlkuna í töskunni. AP

Mikil leit stendur yfir í Texas að þriggja daga gamalli stúlku, sem tekin var af sjúkrahúsi í bænum Lubbock í nótt. Kona, sem þóttist vera starfsmaður sjúkrahússins, tók stúlkuna, faldi hana í handtösku sinni og gekk á brott.

Myndir náðust af konunni á öryggismyndavélar í sjúkrahúsinu. Að sögn lögreglu hafði konan komið nokkrum sinnum inn á sjúkrastofuna þar sem móðirin lá og sagði að barnið þyrfti að fara í rannsókn. Eftir að hafa tekið barnið flýði konan á rauðum pallbíl og er talið að karlmaður hafi beðið hennar í bílnum.

Litla stúlkan, sem heitir Mychael Darthard-Dawodu, var með gulu en að öðru leiti heilsaðist henni vel þegar henni var rænt.

Mychael Darthard-Dawodu.
Mychael Darthard-Dawodu. AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert