Íranskur peningaseðill undirstrikar kjarnorkuáætlanir

Íranar halda fast við kjarnorkuáætlanir sínar og hafa nú prentað peningaseðil sem undirstrikar það, en á honum má sjá atómkjarna og rafeindir. Peningseðillinn eru upp á 50.000 riala, sem eru um 370 krónur. Peningaseðlarnir voru sendir í íranska banka í dag en almenningur fær þá ekki strax í hendur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert