Stakk bróður sinn er þeir rifust um hvað ætti að horfa á í sjónvarpinu

Tólf ára bandarískur drengur stakk 13 ára gamlan bróður sinn með hníf er þeir deildu um hvað ætti að horfa á í sjónvarpinu. Drengurinn sem var stunginn liggur þungt haldin á gjörgæslu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu í Phoenix.

Bræðurnir höfðu rifist heiftarlega um hvað ætti að horfa á í sjónvarpinu þegar sá yngri fór inn í eldhús og sótti hníf með 12 sm blaði og stakk bróðurinn í kviðarholið. Yngri bróðurinn er í gæslu lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert