Skutu á farandsala í Súesskurðinum

Einn Egypti lét lífið og tveir særðust, þegar bandarískir sjóliðar skutu á farandsala á flekum, sem nálguðust bandarísk herskip í Súesskurðinum í kvöld. 

Herskipið, Global Patriot, var á leið frá Rauðahafi til Miðjarðarhafs þegar hópur egypskra farandsala, sem vildi selja smáhluti, nálgaðist það á litlum flekum. Bandaríkjamennirnir skipuðu mönnunum á flekunum að stöðva og hófu skothríð þegar skipununum var ekki hlítt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert